24 March, 2006

Babú babú hætta á ferð.

Ég ákvað að fara aftur á knattspyrnuæfingu áðan, eftir langt hlé. Var bara nokkuð sprækur.
En...
Annars færi maður nú ekki að skrifa um fótboltaæfinguna.
En...
fitubollufótbolti er nú ekki það heillandi að maður þurfi eða þori að lýsa því í orðum.
En...
eyrnabólga getur aftur á móti verið heillandi.
En...

Nú hafði ég verið nokkuð góður í hausnum síðasta mánuðinn, ekki haft teljandi vandræði með jafnvægið. Svo að ég ákvað að fara í fótbolta.
Komst skammlaust í gegnum upphitunina. Skoraði mark í fyrstu snertingu. Fyrsti skallinn heppnaðist líka vonum framar, hann var inni ég er að segja ykkur það.
Jæja nú var minns farinn að hitna og bara orðinn nokkuð brattur. Óhræddur að taka almennilega þátt í leiknum.
SKUGGI.................................................................. bolti frá hægri
tek hann niður með hnakkanum (afhverju hnakkanum? ertu idjót).
BOINK
næ boltanum
SVART
boltinn náði mér tilbaka, ég sé ekki neitt. Lappirnar halda að ég sé bara farinn að sofa og ákveða að, , það sé nú bara ágætur tími fyrir blund.
JÖRÐ
eftir þessi örfáu sekúndubrot í heimi myrkursins sé ég ljósið aftur, það er ekki hvítt það er grátt, drullugrátt.
SPLASK
Og þar lá ég með andlitið ofan í jörðinni.
SVissH
Í sönnum Ninja anda stóð ég upp með því sama og neitaði öllu saman.

Tók smá pásu og svo var bara allt í fínu, svoldið skakkur núna en annars held ég að ég hafi bara haft gott af þessu.
Bölvað rugl ég var ringlaður í klukkutíma eftir æfingu, ég ætla að hringja í lækninn strax á mánudaginn. Þetta gengur ekki lengur.

8 comments:

Anonymous said...

Já farðu endilega til læknisins og berðu þig virkilega illa. Ýktu frásögnina og reyndu að fá hann til að gera eitthvað. Reyndu svo að komast að því hvort þú eigir ekki að sleppa öllum boltaæfingum þetta árið.
Góðan bata.

Anonymous said...

já sammála mömmu þeir gera aldrei neitt nema maður ýki nógu mikið frásögnina. Farðu vel með þig kallinn. En samt er alltaf gott að fara í smá fótbolta hressir og kætir

Anonymous said...

Það hafa allir gott af því að rotast af og til það drepur ónauðsynlegar heilasellur og gerir alla hugsun skýrari og einbeittari. Ninja Dolph væri nú ekkert að væla yfir þessu. Hvort ertu nagli eða saumur. Berjast maður berjast!!!!!

Anonymous said...

Hvernig ertu í hausnum kúturinn minn, þú verður að fjárfesta í svona spassahjálm til að vera með dags daglega.

Anonymous said...

Farðu vel með þig kúturinn minn. Lýst vel á hjálma hugmyndina hans grettis...... til í öllum litum :o) Pantaðu nú tíma hjá lækni kallinn minn og láttu kíkja á hausinn á þér.

Anonymous said...

Elsku litla krúsídúlla mín, guð minn almáttugur farðu nú vel með þig. Ertu ekki með hjálm þegar þú hjólar í skólann? Þværðu þér ekki um eyrun reglulega. Borðaru nóg. Hefur reglulegar hægðir. Er herbergið hreint . Ertu nokkuð búinn að eiga samlíf með önd, þessi fuglaflensa er rosaleg.

Anonymous said...

kannski ekki önd en örugglega hönd!

Anonymous said...

nanohvad.blogspot.com is very informative. The article is very professionally written. I enjoy reading nanohvad.blogspot.com every day.
cash loan
online payday loans