17 February, 2008

Svosum ekkert að gerast

...nema að Karina og Jenni frændi eru komin aftur. jei jei jei.
Þá hefur maður einhver til að hanga utan í og æfa íslensku.

En annars er þetta bara rólegt. Við Simone hættum við að flytja saman, og hún fann sér herbergi niðri í bæ. Flytur út af kollegíinu eftir 2 vikur. Ég er harður ghettóbúi. Fer ekki rassgat.

Það voru uppþot hérna í hverfinu í vikunni. Kveikt í ruslageymslum og öðru gáfulegu.
En eins merkilegt og það er þá eru helvítis hipparnir alltaf að kasta grjóti og brenna bíla, og þeir hafa stuðningsmenn innan þingsins.
Þegar innflytjendurnir verða súrir og brenna ruslatunnur þá eru þetta hryðjuverkamenn og landráðamenn.

Helvítis aumingjar allt saman. Það ætti að safna þeim saman, rífa af þeim útlimina og kveikja í þeim. Eða bara setja þá í búr saman, svo fá þeir sem lifa af 200þús. og ferð til spánar. Gott sjónvarpsefni þar.

En annars, þá hef ég verið þekktur fyrir fallegan fölan húðlit. Mjúkur sem barnsrass og unglegur með eindæmum. Svo var ég á gangi úti í Nettó, og sé þá á tilboði rakakrem
"makes you brilliantly golden brown"
með brúnkulit.
Ég sé þarna einstæðan möguleika fyrir hvíta manninn að passa loksins inn í gettógírinn. Læðist að rekkanum set þetta í innkaupakörfuna og fer svo heim að afgreiðsluborðinu. Verð nú svoldið óöruggur með karlmenskuna þarna, svo að ég rúlla fram hjá baðvörunum og kippi dömubindum með; "ég er að kaupa þetta fyrir kærustuna, ekki fyrir mig. Ha, ha, ég, nei nei."

Svo fer ég heim og baða mig upp úr brúnkunni og finn bara hvernig ég verð ómótstæðilega gullinn og fallegur.
Þokkalega sáttur fer ég í skólann, með bros á vör, blá augu og brúnku sem dáleiðir. Fyrsti tími er byggingar, efni og umhverfisáhrif.
Þar er farið yfir öll möguleg hormónatruflandi efni og eyðileggingarmátt þeirra. Og þar á meðal voru parabenar sem hafa óstjórnlegan eyðileggingamátt. Fósturgallar, frjósemisvesen og bara tóm leiðindi.
Svo fer ég nú heim og kíki á þennan 5 lítra brúnkudúnk og viti menn. Ekkert nema einhverir sterar, parebenar, pthaler og eiturefni í stórum stíl.
Þannig að ég gafst bara upp aftur.
Náði frá mínum náttúrulega fallega bleika lit yfir í fölgulan, en svo ekki meira.

Maður fer nú ekki að eyðileggja afkvæmisframleiðslukerfið fyrir einhverja sænska gervibrúnku.

En annars bara over and out.

En kíkið endilega á þetta parabena dæmi. Methyl og Ethyl-paraben eru ok, en propyl, butyl og iso formin af þeim eru hormónatruflandi. Og þið mæður verðið að passa ykkur sérstaklega á þessu.
Það eru tvö merki sem á að vera hægt að stóla á, skandinavíska svanamerkið og svo blómið, sem er evrópustimpill.
Það er ekki hægt að stóla á auglýsingar, t.d. var Simone með krem sem var merkt lífrænt, fallegt og seiðandi eða eitthvað álíka og það var yfirfullt af svona eitri.
En til allra lukku hefur fyrirtækið, Novozymes, hér í danmörku fundið ensími sem hugsanlega geta komið í stað þessara efna.

Förum aðeins yfir þetta:
Parabenar nei takk.
Svanurinn og Blómið, já takk.