01 December, 2005

Góður nætursvefn

Er gulli betri.
Mig dreymir.
Mig dreymir mikið og yfirleitt ægilega skemmtilega. Draumfarir mínar væru efni nokkur bindi. En sumir draumar eru óþægilegri og eftirminnilegri en aðrir, aðallega af því að þessi tegund af draumum boðar yfirleitt eitthvað slæmt. Ekki endilega gagnavart mér heldur líka hjá fólki sem ég þekki. En ég skil ekki drauma þannig að ég fatta það aldrei fyrr en eftir á.

Hitti draug í draumi í nótt.
í draumnum þá rumska ég, rís upp og veit ekkert hvar ég er og leggst því bara niður aftur. Eitthvað fór þetta í fólkið sem var í herberginu og þau fara að tala um mig. Ég held að það hafi talað íslensku, alla vega skildi ég þau en var ekki alveg vanur þessu tungumáli. Ein segir: "Er hann vaknaður, athugaðu. Það held ég ekki,"segir önnur. Svo gengur sú síðari frá hópnum og ætlar að athuga hvort að ég sé vaknaður, hún skríður upp í hjá mér og ég vakna.
vúússh
Nú er ég í herberginu mínu, glaðvakandi það er enginn hér. Órólegur leggst ég út af en er vakandi. Þá kemur sú hin sama og stendur við hliðina á rúminu.
Grönn kona í hvítum klæðum, en ekki get ég munað andlitið á henni.
"Sofðu áfram, þetta er allt í lagi", segir hún og breiðir yfir mig.
En ég er vakandi svo að ég teygi mig í áttina að henni og gríp í hönd hennar.
BLAMM
Konan hverfur, ég fæ shokk, hristist og skelf og get ekki vaknað.
Hrekk svo upp bullsveittur.
Og eitt af því fyrsta sem kemur upp er:"Þú mátt ekki snerta hana, þú veist það alveg."

Ég held að hún hafi ekki verið lifandi.

4 comments:

Anonymous said...

Hefurðu ekki lesið huldufólkssögur ? Í þeim eru menn ærðir annað slagið og stundum vill huldufólkið tæla mannfólkið með sér í eina sæng. Fólki hlotnast mikið lán ef það stenst slíkar freistingar.
Líklegast hefurðu orðið yfirþreyttur og fengið martröð.
Nú er bara að taka á honum stóra sínum. Það er fjöldi manns sem þarf alla námsævi sína að leggja óhugnalega mikið á sig til að ná örlitlum árangri.

Anonymous said...

"Grettir, passaðu þig á kóngulónni"
Gaman af þessum draumum þínum!

Annars held ég að þessi nýji draumur þinn sé....hmmm kællinger, pas på de kan være farlige

kv
Haukur J

Anonymous said...

Ef ad eg hefdi ekki varad Gretti vid, ta hefdi hann verid etinn. Tad veistu alveg Haukur. Tetta var ofreskja, hrikalegt monster.

Anonymous said...

þetta er alltílagi farðu bara að sofa aftur