21 May, 2007

Jæja

Hvar á maður að byrja.
Hvernig væri að byrja á, maður á ekki að hjóla fullur.
og svo er við hæfi að segja frá því að foreldrarnir komu í heimsókn, ásamt Arnóri bróður og stuttu áður hafði Arnór móðurbróðir komið við.
Það var huggulegt, maður hafði fleiri til að drekka kaffi með. Kaffi, mmm
Ég er kominn með pressukönnu. Jenni og Karina voru orðinn þreytt á einhverju instant sulli. Ég var reyndar líka búinn að finna mér venjulega könnu. Svo að nú hef ég fleiri valmöguleika. instant, fínmalað og grófmalað.

En maður á samt ekki að hjóla fullur.

Fjölskyldan fór í bíltúr, keyrðum til Silkiborgar og skoðuðum okkur um. Fórum svo á Himmelbjerget, sem var fínt. Ekki stórt, frekar en annað í Danmörku. Jú reyndar eru brjóstin svoldið stór í danmörku, mmm kæfa. En útsýnið var gott.

Og svo kom föstudagur, og mér var boðið á barinn. Barinn var góður. Svo var partý. Partýið var skemmtilegt. Og ég fór ekki niður í bæ og fann taxa, heldur hjólaði heim. Maður á ekki að hjóla fullur. En það var heppilegt því að ég var svo drukkinn að ég gat ekki gengið.
Og ég legg af stað á hjólinu, (skynsamlegt), vrúúúmmm. Brabrand hír æ kom.
Það eru 4km út í brabrand frá háskólanum. Langir 4 kílómetrar, nær því að vera 4000m.
Og þetta gengur þokkalega, kominn á hjólið. Allt að gerast, upp eftir Langeladesgade yfir ljósin. Vona að það hafi verið grænt. Vrúúúmmm, íha.
Og þarna er beygja, og þá fór þetta nú allt að verða skuggalegt, því að eftir fyrstu beygjuna þá sá ég beygjur út um allt.
HAALLLÓÓ, nú er beygja. ....vrrúúúmmm út á götu yfir götuna upp á gangstétt hinum meginn. Nah, þetta var víst ekki beygja.... vrarúúúúmm út á götu aftur yfir götuna, upp á gangstétt og inn í skóg. Þvílíkt safarí ferðalag.
Og nú á ég aðeins 3700m eftir.
vrúúúmmm
og svo til baka.
vraarúúmm
nema ég náði ekki inn í skóg, heldur stökk einhver brjálaður dvergur í veg fyrir mig og barði mig í ennið með gangstéttarhellu. Klikkaðir þessir dvergar.
babúú babúú
jæja, hjólið rétt við, kíkt á stellið, allt óbrotið. Aumur í hausnum en ekkert alvarlegt.
vrúúúúmmm áfram er haldið, íha, partý partý.
vrarúúúmm
Ég verð nú að viðurkenna að á þessum tímapunkti var ég búinn að átta mig á því, ekki að stoppa og hringja á taxa, heldur að þetta gengi betur ef að ég lokaði öðru auganu. En svo er þetta bara ekkert að gera sig, því að ég sé heldur ekkert með opna auganu, og það er eitthvað vesen á andlitinu, það dropar úr því. Sjúkraliðinn Eiríkur, gerir það besta í stöðunni og fer í þá stöðugustu stellingu sem hægt er að finna í þessu ástandi.
BOINK
Flatur á jörðinni að fikta í andlitinu, blóðið lekur niður hálsmálið, hjólað útatað í líkamsleifum.
og ennþá 3600m eftir upp í brabrand.
Þetta er ekkert mál, Eiríkur, við reddum þessu, skrifum bara SMS og látum vinkonuna vita af komu okkar upp á kollegí, þá fær maður smá samúð.
Það fór nú dágóður tími í að skrifa SMS-ið og það hljómaði svona.
Hjælp, jeg bløder. Kommer om 15min.
Jæja þá er maður nú seif, svo þarf bara að koma sér heim.
Hjóólandi, oh mí god.
vrrúúúúúúúmmmmmm
VRAAAAARÚÚÚMMMM

kemst svo við illan leik upp á kollegí. Innyflin tekin af bögglaberanum og borinn inn. Merkilegt nokk, að þá framdi ég fyrstu hjálp á sjálfum mér þegar ég kom inn á bað. Raðaði innyflunum á rétta staði og svona, milta vinstra neðra maður man þetta alveg, eða ekki.
Jæja, þá er best að finna einhvern ábyrgðarfullan sem getur nú sagt mér hvort að ég sé að drepast. Staulast spaðölvaður á nærbuxum og blóðugri skyrtu einum fata, út til Anders eðlisfræðings sem aldrei drekkur og er alltaf heima, hann veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið en tekur þessu með ró og rekur mig í rúmið.
ónei, fyrst þarf maður nú að fá orku til að takast á við þessi meiðsl. Og það er farið í ísskápinn.
vrúúúmmm
vrarrúúúúmmm
hehe

Svo að lokum til að vera ekki að hræða fólk að óþörfu, sms2: Jeg er i live - vi snakkes.

Eftirmáli
Kom of seint á slysó þannig að það var ekki hægt að sauma, þótti heldur ekki merkilegt. Fékk plástur.
Og svo segir Række, sæti læknirinn minn, plásturinn má ekki blotna.
Það er nú í lagi ég fer aldrei í bað, segir Eiríkur fyndni.
Ja, plásturinn má ekki blotna og hann þarf að vera á í minnst viku.

Og þá söng Stebbi, svimi sviði svitabað, svimi sviti bað.

8 comments:

Anonymous said...

....... ertu nokkuð enþá fullur.....????

Anonymous said...

Hvað meinaru með að það hafi ekki virkað að loka öðru auganu, þú hefur bara lokað vitlausu auga. Svo vita það allir að ef Þú ætlar hjóla fullur þarf einhver að vera á hjólinu með þér annars gengur það bara ekkert af því að betur sjá augu en auga.

Anonymous said...

Ertu búinn að finna þann sem keyrði í veg fyrir þig?

Anonymous said...

þessir dvergar eru stórhættulegir

Anonymous said...

seriusly! las e-r þessa langloku!

Anonymous said...

Er ekki kominn tími til, að á þessum síðum sé rætt um framvindu náms og tengda hluti, í stað þess að skrifa eingöngu um (kvennafar) drykkju, kúluskít og annað samsvarandi.

Það var mjög gaman að heimsækja þig sonur sæll. Síldin, rúgbrauðið og tólgin í den gammelby var toppurinn á tilverunni. Hafðu gaman af lífinu.
pabbi

Anonymous said...

Ég er alltaf að reyna að vera alvarlegur. Það er bara ekki eins gaman að skrifa um það.
lífið er of skemmtilegt

Anonymous said...

ég held það hefði örugglega gengið betur ef þú hefðir lokað báðum augum, tekið dverginn á böglaberann og varúúúm