08 March, 2008

Nú er allt að gerast.

Ég ætla bara ekkert að segja ykkur frá því strax.

En í staðinn er ég með smá áhugaverðar pælingar. Mér finnast þær alla vega áhugaverðar. Ég er svona líkamsræktar, næringar, líffræði áhugamaður fram í ystu æsar.

Hvað þýðir það annars, ystu æsar, er þetta frá uppsprettu til ósa, eða hefur þetta eitthvað með æsi að gera.

Jæja, alla vega er ég búinn að halda æfingadagbók síðan ég flutti til danmerkur og keypti mér vog um vorið 2006. Einmitt þegar ég fór á rúntinn með Garðari og Helga til Þýskalands. Sem var nú bara ansi gaman. Og nú 2 árum síðar get ég sýnt ykkur svoldið skemmtilegt.
Það sést nú ekki allt of mikið. En þarna sést þyngdarbreyting yfir tæplega 2 ára tímabil. Það sem að mér finnst áhugavert er að þetta eru litlar breytingar í lífstíll, sem hafa áhrif á þyngdina. Ég veit ekki hvort að það sést hvað stendur. En þegar þyngdin minnkaði hjólaði ég í skólann og æfði lyftingar og hljóp annað slagið. Á rauða svæðinu tók ég mataræðið aðeins í gegn og minnkaði drykkjuna. Svo kemur bláa svæðið, uss uss uss. Aðalbreytingin þar er að ég hjóla ekki eins oft í skólann. Æfi lyftingar 3-4 sinnum í viku, hljóp lítið og borða svoldið meira af nammi.
Og svo fyrir ca. 2 vikum fór ég að taka á mataræðinu aftur. Æfi lyftingar 3-4 sinnum og hjóla svo 1-2 í viku. Er ekki byrjaður að hjóla í skólann. Það hægði á þyngdaraukningunni og nú er þetta á hægri niðurleið aftur.
Það sem að mér finnst áhugavert er hvað þessar litlu breytingar geta haft mikil áhrif. Í gegnum tímabilið hef ég borðað mjög svipaðan mat. Aðal munurinn liggur í hvort að ég hef borðað kökur og sætindi.
Ég hef alltaf æft, nema í janúar og hluta af febrúar, og það sem að maður myndi kalla skipulagðar æfingar, lyftingar, hlaup eða hjólatúrar hefur legið í 3-5 sinnum í viku.
En svo er stóra breytingin. Það er hvort að ég hjóla í skólann eða ekki.
Ég mældi þetta á sunnudaginn og þar liggja 500kcal. í þeim hjólatúr, sem dugar alveg fyrir poppi og kókþambi annað slagið.
Þannig að þetta er á tæru fyrir mér. Maður á að fá hreyfingu inn í daglega rútínu, hjóla í vinnuna, labba út í búð og allt eftir því. Ekki einungis er það hressandi, heldur er það tímasparandi.

Dæmi:
Keyrt í allan pakkan.
Æfingar 4-sinnum í viku.
Farið í ræktina á leið heim úr vinnu.
10mín að keyra í vinnuna.
10mín að keyra í gymmið.
10mín í upphitun
40mín lyftingar/hlaup
15mín í sturtu.
5mín að keyra heim.

Æfingatími á viku 50x4=200mín.
Keyrslutími 25x4=100mín.
Fataskiptingar 15x4=60mín
Heildartími 7 tímar á viku.



Hjólað í allan pakkann.
Farið í ræktina á leið heim úr vinnu.
Æfingar 3-sinnum í viku.
20mín að hjóla í vinnuna.
10mín skipta um föt.
15mín að hjóla í ræktina
30mín lyftingar
10mín hjóla heim.
15mín í sturtu og skipt yfir í heimaföt.
Æfingatími á viku 75x3+2x40=305mín.
Fataskiptingar 25x5=125mín
Heildartími 7 tímar 10mín

Magnað ekki satt. næstum því tveir tímar á viku í aukahreyfingu og gert á jafn löngum tíma.

2 comments:

Anonymous said...

Út í ystu æsar - æsar skv. orðabók þýðir kantur, brún, jaðar.
Kunna út í ystu æsar = kunna nákvæmlega, í smáatriðum.
Gaman hvað gengur vel og menn eru kátir, en gættu þess bara að verða ekki of "smáatriðasamur."
Þú ert alltaf flottur hvort heldur er feitur eða grannur.

Anonymous said...

Thad eru einmitt smáatridin í thessu sem eru áhugaverd. Thad er ljóst ad ég hreyfi mig alveg helling, en ég ét líka alveg heil óskøp. Ég skil vel ad fyrir suma eru tetta øfgar ad æfa svo mikid en fyrir mig er bara erfitt ad vera kyrr. Ef ég fer nidur í 2-3 æfingar í viku og ekkert annad kemur í stadinn, thá er ég eirdarlaus og illt í bakinu af øllu hreyfingarleysinu. Sem dæmi thá finnst mér ég ekkert hafa hreyft mig í sídustu viku, en thegar ég hugsa um thad, thá æfdi ég sunnudag, mánudag og midvikudag, og svo nokkrir gøngutúrar thar sem ég get hvorki hlaupid né hjólad enthá.
En thad sem ad ég vildi sýna var ad fyrir manneskju sem lifir nokkurn veginn í sama mynstri og fer ekki í einhverjar stórkostlegar breytingar á sínu lífi er hægt ad sjá hvad einmitt smáatridin gera mikinn mun.