01 June, 2006

Eiríkur þú ert snillingur

En samt frekar slappur snillingur.

Þá er efnafræðiprófið búið og er ég nánast sannfærður um að ég hafi staðið prófið. Held meira að segja að ég gæti hafa náð 7.

En efnafræðipróf eru bara algjört krapp og kjaftæði, t.d. svaraði ég A við einni spurningu, sem er hárrétt, en allir hinir svöruðu B, sem er vitlaust, þá er skrifað í lausnirnar: A er réttast en fólk fær líka rétt fyrir B af því að það er líka séns á að það geti gerst.

Og svo svara ég öðrum spurningum með A eða B eða hvað það nú er, þá er það ekki hægt, þá er bara ein "rétt" lausn sem prófhöfundur ákveður. Þetta er samsæri, rasismi og ekkert annað.

Talandi um rasisma, þá eru nokkrar matsölur í skólanum. Ein sú alræmdasta sem ég geri allt til að sneiða hjá er í stærðfræðideildinni. Ég er búinn að kvarta nokkrum sinnum við skólabræður mína um mismunum í verðlagningu, það er nefnilega þannig kerfi að þær mega meta hversu mikið ég set á diskinn og svo kostar maturinn frá 250-350íkr. eftir áhuga og ég þarf alltaf að borga toppprís.
Í október síðastliðnum hætti ég að kaupa mat þar, en nú hitti svo á að eðlisfræðimatsalan var lokuð og ég ekki með neitt nesti. Ég held út til 10 aðfram kominn af hungri, svo verður klukkan 11, ég er farinn að missa mátt í útlimum, klukkan slær 12 og ég er farinn að fá ósjálfráða taugakippi, nú verður eitthvað að gerast. Ég skríð út í lyftu og fer niður í kantínu. Jæja, þetta lúkkar nú ekki svo slæmt, fiskur frá 200-300 nokkuð gott.
Svo tek ég einn fisk, nokkrar kartöflur og sósu og ætla svo að borga.
300kall takk.
300 kall ertu ruggluð, ég gæti ekki haft minna magn á disknum án þess að fá helmingsafslátt.
Ég sagði það reyndar ekki en ég minntist á að þetta væri nú asnalega vegið hjá henni. Og hún urrar bara eitthvað á dönsku. Svo kemur skólabróðir með 8kg á disknum og það er bara smíl og 250.
Ég missti mig bara og öskraði á hana RASISTI.
Grýtti svo kartöflunum í kokkinn: Þú ert ljótur og asnalegur og þú heldur að ravioli sé hérað í Norður-Noregi. Djöfull eruð þið minnimáttar

fáviti

Helvítis andskotans auli
ég vona að garnirnar gauli
gefi sig og þú kúkir kolum
og kynlífið það sé í molum
Meistari kokkur það mætti halda
að þú megir aldrei heima elda
því allt sem þú gerir er algert krapp
og þú ert RASISTI.

6 comments:

Anonymous said...

Já láttu þau heyra það helv rasistar. Gastu ekki bara farið til baka og bætt á diskinn fyrst þú þurftir hvort sem er að borga fullt. En Eiríkur minn þú ert snillingur svo þetta er allt í lagi. Segðu það bara næst við kantin kvinden

Anonymous said...

Já láttu þau heyra það helv rasistar. Gastu ekki bara farið til baka og bætt á diskinn fyrst þú þurftir hvort sem er að borga fullt. En Eiríkur minn þú ert snillingur svo þetta er allt í lagi. Segðu það bara næst við kantin kvinden

Anonymous said...

Ég var að pæla, Eiríkur minn, hvort konan hafi ekki urrað eitthvað á dönsku af því að þú ert í Danmörku og þar er töluð danska. Þú ert nú orðinn full danskur fyrst þú ert að gera veður út af 300 kr. fyrir máltíð sem þú verður saddur af jafnvel þó þú sért að grínast. En þetta eru auðvitað rasistar. Það er á hreinu. Til hamingju með að vera búinn með efnafræðina og gangi þér allt í haginn.

Anonymous said...

Ég gleymdi áðan að hæla þér fyrir kveðskapinn og geri það hér með.

Anonymous said...

uurrrrrr........

Anonymous said...

Jæja kallinn ekkert nýtt að frétta??